Heilsa og vellíðan
til framtíðar
Radísa er íslensk netverslun sem býður vandlega valdar vörur með áherslu á heilbrigða öldrun, heilsu og vellíðan. Markmið okkar er að gera gæðavörur og nýjungar frá traustum framleiðendum aðgengilegar á íslenskum markaði.
Við fylgjumst með nýjustu rannsóknum á næringu, heilbrigðri öldrun og ljóstækni. Við leggjum áherslu á gæði, áreiðanlegar upplýsingar og vöruúrval sem er valið af kostgæfni.
Í vöruúrvali okkar eru meðal annars fæðubótarefni frá norska fyrirtækinu AgeLab, sem eru þróuð með aðkomu sérfræðinga á sviði læknisfræði og lífvísinda. Við bjóðum einnig SunBooster-ljósatæki og stefnum að því að auka úrval vara sem nýta rautt og nærinnrautt ljós.
Radísa mun halda áfram að kynna ný vörumerki og spennandi nýjungar sem eiga það sameiginlegt að styðja við góða líðan í dag og heilbrigða öldrun til framtíðar.
